Svif
Velkomstbæklingur frá Svif svífur yfir ljósum bakgrunni

Við tengjum ykkur við alla nýja húseigendur á höfuðborgarsvæðinu.

Svona virkar það

Skref 01Nýtt heimili

Um 80% nýrra húseigenda ráðast í framkvæmdir eftir húsakaup

Um 80% nýrra húseigenda ráðast í framkvæmdir eftir húsakaup

Fyrir marga nýja húseigendur eru húsakaupin aðeins byrjunin. Framkvæmdir, viðhald, endurbætur og ný innkaup fylgja oft í kjölfarið – og þar skapast tækifæri fyrir fyrirtæki eins og þitt til að ná til nýrra viðskiptavina á réttum tíma.

Skref 02Sjálfvirkt eftirlit

Við finnum nýja húseigendur

Við finnum nýja húseigendur

Kerfið okkar greinir ný fasteignakaup á höfuðborgarsvæðinu og hjálpar okkur að finna heimili sem hafa nýlega skipt um eigendur. Þannig getum við beint bæklingnum að fólki sem er nýbúið að kaupa sér heimili – á þeim tímapunkti þegar þörfin fyrir framkvæmdir og ýmsa þjónustu er oft hvað mest.

Skref 03Traust fyrirtæki

Við veljum traust fyrirtæki

Við veljum traust fyrirtæki

Við leitum að traustum og faglegum fyrirtækjum sem geta veitt nýjum húseigendum góða þjónustu.

Skref 04Prentun & póstur

Við hönnum, prentum og sendum

Við hönnum, prentum og sendum

Við sjáum um allt ferlið — frá hönnun og prentun yfir í dreifingu. Bæklingurinn er sendur beint heim til nýrra húseigenda.

Skref 05Bein dreifing

Bæklingurinn svífur heim

Bæklingurinn svífur heim

Bæklingurinn svífur beint heim til nýrra húseigenda — á þeim tímapunkti þegar nýja heimilið er að taka á sig mynd og þörfin fyrir góða þjónustu er hvað mest.

Af hverju Svif?

Rétta fólkið á réttum tíma.

Kerfið virkar af einni ástæðu: við setjum auglýsinguna þína þangað sem eftirspurnin er — og gefum fólki ástæðu til að geyma hana.

01

Þar sem eftirspurnin er

Engin óþarfa dreifing. Bæklingurinn fer beint til nýrra húseigenda á þeim tímapunkti þegar þeir eru að koma sér fyrir, skipuleggja framkvæmdir og leita að þjónustu fyrir nýja heimilið sitt.

02

Fullkomin tímasetning

Nýir húseigendur eyða meiru fyrstu 6 mánuðina en næstu 5 ár á eftir.

03

Afslátturinn gefur bæklingnum virði

Venjulegar auglýsingar eru auðvelt að fletta framhjá. Með sérkjörum og afsláttum verður bæklingurinn hins vegar að einhverju sem nýir húseigendur hafa raunverulegan ávinning af því að geyma og skoða þegar þörfin kemur upp.

04

Afslátturinn vinnur fyrir þig

Þegar þörfin fyrir pípara, málara, smið eða aðra þjónustu kemur upp, er fyrirtækið þitt þegar komið inn á heimilið. Nýi húseigandinn hefur séð tilboðið þitt og hefur ástæðu til að leita til þín fyrst.

Fyrir fyrirtæki

Hverjum hentar bæklingurinn?

Bæklingurinn tengir þig við nýja húseigendur á þeim tímapunkti þegar þau eru að leita að þjónustu. Við höldum plássfjölda í hverjum flokki takmörkuðum svo auglýsingin þín fái athygli.

Iðnaðarmenn

Húsgögn og raftæki

Tryggingafélög

Öryggisþjónustur

Garðyrkja og utanhús

Málning, gólf og innréttingar

Bílakjallari og bílastæði

Gluggar og svalir

Þrif og sótthreinsun

Háþrýstiþvottur

Byggingar og viðhald

Bílastæði og merkingar

Iðnaðarmenn

Húsgögn og raftæki

Tryggingafélög

Öryggisþjónustur

Garðyrkja og utanhús

Málning, gólf og innréttingar

Bílakjallari og bílastæði

Gluggar og svalir

Þrif og sótthreinsun

Háþrýstiþvottur

Byggingar og viðhald

Bílastæði og merkingar

Spurningar

Algengar spurningar.

Sæktu um pláss í næsta bækling.

Fyrirtækið

Flokkur

Tilboðið

Auglýsingin

Notuð fyrir reikningagerð.

Fyrir próförk og samskipti.

Notað fyrir reikninga og til að staðsetja ykkur í bæklingnum.

Tekur um tvær mínútur